top of page

Íslendingasaga

Sturlu Þórðarsonar

 

Hið íslenska Þjóðvinafélag gaf út myndskreytta útgáfu af meginþætti Sturlungusafnsins, þ.e. Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar. 

Umsjónarmaður útgáfunnar var dr. Finnbogi Guðmundsson. Hann hafði til viðmiðunar texta þann sem prentaður var í Sturlunguútgáfunni frá 1946, en aðalumsjónarmaður þeirra útgáfu var dr. Jón Jóhannesson.

Íslendingasaga Sturlu Þórðarsonar er 311 blaðsíður.

Þessi bók kom fyrst út í eins konar hátíðarútgáfu á þjóðhátíðarárinu 1974 með þeim hætti, að dr. Finnbogi Guðmundsson valdi um eitt hundrað viðburði úr Íslendingasögu Sturlu og fól tveimur listamönnum, Eiríki Smith og Þorbjörgu Höskuldsdóttur, að færa þessa viðburði í búning myndlistar.

 

Hér fer því saman hinn stórbrotni texti sagnaritarans Sturlu og sýn listamannanna á eitt viðburðaríkasta tímaskeið Íslandssögunnar, Sturlungaöld.

 

Sturla Þórðarson (1214-1284) sagnaritari, lögsögumaður og síðast lögmaður, var bróðursonur Snorra Sturlusonar og kemur sjálfur við mörg helstu deilumál Sturlungaaldar. Íslendingasaga hans er frásögn um menn og málefni þrettándu aldar, einkum stjórnmálaátök. Fjallar hún um samtíð höfundarins sem hann lýsir listilega og færir í stílinn með aðferðum sem einkenna oft Íslendingasögur, en er hér beitt á raunverulega atburði. Sumar lýsingar minna á fréttaviðtöl nútímans en atburðarásin er hröð líkt í spennusögu.

 

 

 

© 2023 by Conferences Website. Proudly created with Wix.com

bottom of page